Fyrrverandi UFC stjarnan Dustin Poirier var handtekinn á Hartsfield Jackson Atlanta International Airport á sunnudag eftir átök við starfsfólk Delta Air Lines þegar honum var meinað að fara um borð í flugvél. Hann hefur verið ákærður fyrir ölvun á almannafæri en hefur síðan verið látinn laus gegn tryggingu.
Samkvæmt lögreglu var kallað eftir aðstoð eftir að starfsfólk Delta tilkynnti um farþega sem grunaður var um ölvun. Flugfélagið hafði ákveðið að neita manninum um að fara um borð þar sem hann þótti ekki í ástandi til að ferðast.
Lögregla segir að Poirier hafi brugðist reiður við og ítrekað öskrað blótsyrði að starfsfólki flugfélagsins. Einn lögreglumannanna sem mætti á vettvang var UFC aðdáandi og þekkti Poirier. Hann óskaði eftir liðsauka áður en hann nálgaðist bardagamanninn enda ekki öfundsvert að ætla að yfirbuga slíkan mann einsamall.
Myndbandsupptaka sýnir handtökuna
Á upptökum úr búkmyndavél lögreglu sést Poirier eiga í orðaskiptum við lögreglumenn skömmu eftir komu þeirra að hliðinu. Samkvæmt lögreglunni hélt hann áfram að vera æstur, lét blótsyrðum rigna yfir lögreglumanninn og setti sig í bardagastöðu og sagðist ætla að slást við lögreglumanninn.
Í myndbandinu heyrist hann jafnframt segja við lögreglumenn:
„Ef þið viljið handtaka mig, þá gerið það.“
Í kjölfarið handtóku lögreglumenn Poirier. Samkvæmt yfirvöldum veitti hann ekki frekari mótspyrnu eftir að handtakan hófst og var fluttur í fangageymslu þar sem hann var ákærður fyrir ölvun á almannafæri.
Kom fyrir dóm daginn eftir
Poirier kom fyrir dómara á mánudag vegna málsins. Hann var látinn laus gegn tryggingu á meðan málið heldur áfram fyrir dómstólum.
Poirier er einn þekktasti bardagamaður UFC síðustu ára. Hann hefur meðal annars tvívegis unnið Conor McGregor og barist um léttvigtarbeltið í UFC gegn Khabib Nurmagomedov, Charles Oliveira og Islam Makhachev. Hann lagði hanskana á hilluna fyrr á þessu ári eftir langan feril í íþróttinni.
Eftir atvikið steig Poirier fram og viðurkenndi að eiga erfitt með lífið eftir að hann hætti í UFC og að það væri ekki lausnin að fylla tómarúmið sem fylgdi því að vera hættur að berjast með áfengi.
I understand that Dustin was drunk, but his use of the N-word is absolutely inexcusable. I’ve been a fan of Dustin Poirier for years, but if he doesn’t get help and take responsibility for it, I’ll simply stop being a fan. No biggie. https://t.co/DIvZH64sAs
— MMA News Africa (@MMAnewsAfrica2) June 24, 2026