Skripal, fyrrverandi rússneskur leyniþjónustumaður sem bjó á Englandi eftir fangaskipti Bretlands og Rússlands, og dóttir hans veiktust heiftarlega þegar eitrað var fyrir þeim í bænum Salisbury árið 2018.
Feðginin komust bæði lífs af en bresk kona sem komst í snertingu við leifar taugaeitursins sem rússnesku útsendararnir skildu eftir sig var ekki svo heppin.
Nú hefur húsið sem Skripal bjó í verið sett á sölu. Sveitarfélagið á staðnum á meirihluta hússins en þrjátíu prósent hlutur í því selst fyrir 114 þúsund pund, jafnvirði rúmra nítján milljóna íslenskra króna.
Breska blaðið The Guardian segir að sveitarfélagið hafi fest kaup á húsinu eftir tilræðið, meðal annars til þess að koma í veg fyrir að einhver breytti því í smekklausan ferðamannastað.
Í fasteignaauglýsingunni er tekið fram að húsið hafi komið í sögu í eiturtilræðinu árið 2018. Húsið sé einnig nálægt skólum, verslunum og almannasamgöngum og því fylgi góður garður. Það sé prýðilegt hús fyrir fjölskyldur.
Ekki fylgir sögunni hvort húsið sé nærri dómkirkjunni í Salisbury en hún er það sem rússnesku útsendararnir sögðu ríkisfjölmiðlum RT á sínum tíma að hefði verið ástæða örstuttrar heimsóknar þeirra til bæjarins.
Bresk stjórnvöld telja að Vladímír Pútín, forseti Rússlands hafi persónulega gefið skipun um tilræðið við Skripal.