Á þessum degi árið 1966 var fyrsti sjónvarpsfréttatíminn sendur út, daginn sem Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar. Hann var frábrugðinn fréttatímanum sem landsmenn þekkja í dag. Dagskrárliðurinn nefndist Frá liðinni viku og var á dagskrá klukkan 22:45.
Hægt er að nálgast dagskrá sjónvarpsins frá fyrsta degi á tímarit.is.
Magnús Bjarnfreðsson og Markús Örn Antonsson skiptu með sér hlutverki fréttaþular og fóru yfir erlendar fréttir.
Fellibylir, flóð, heræfingar Varsjárbandalagsins, Víetnam-stríðið, hlébarði á flótta og ólæti á tónleikum Rolling Stones í Lundúnum voru meðal í þessum fyrsta fréttatíma sjónvarpsins.
Fréttatíminn endaði með frásögn af Chi-chi og Anan, pöndum, eða bambusbjörnum réttara sagt. Þannig var tónninn settur fyrir frásagnir úr dýraríkinu í fréttatíma sjónvarpsins.