Þá var einnig tilkynnt í Breiðholti um hópamyndun ungmenna við verslunarkjarna, væntanlega Mjóddina, þótt það sé ekki tilgreint.
Þá var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í Grafarvogi og umferðaróhapp og svo um „aðfinnsluvert háttarlag einstaklinga á veitingastað“ í Hafnarfirði.
Fram kemur í dagbók að í morgun hafi fimm gist í fangageymslu lögreglunnar.