Miklu magni af kókaíni, pökkuðu í plast, hefur verið stolið úr sönnunargagnageymslu í byggingu hæstaréttar Fiji-eyja í höfuðborginni Suva. Hveiti var skilið eftir í staðinn. Rannsóknarlögreglumenn hafa síðan í gær farið yfir allar vísbendingar um hvað kunni að hafa orðið af tugum pakkninga sem innihéldu eiturlyfið.
Lögreglan lagði hald á 39 eins kílógramma pakkningar af kókaíni í rassíu fyrir sjö árum. Þá var alveg öruggt að innihaldið var kókaín, að sögn lögregluyfirvalda. Fyrr á þessu ári kom í ljós að sjö pakkningar voru horfnar.
Þá ákváðu yfirvöld að kanna innihald hinna, sem reyndist vera hveiti, eins og áður sagði, en ekki arða af kókaíni.
Þótt eyjarnar séu þekktastar fyrir stórkostlegar strendur sem laða að sér fjölda ferðamanna ár hvert hafa þær á síðari árum orðið viðkomustaður fíkniefnahringja sem flytja eiturlyf á borð við kókaín og verksmiðjuframleitt metamfetamín yfir Kyrrahafið frá Rómönsku Ameríku til Ástralíu.
Það innstreymi hefur leitt af sér aukna neyslu og hækkað glæpatíðni ásamt því sem tilfellum HIV hefur fjölgað, þar sem amfetamínfíklar nota óhreinar sprautunálar. Lögregluyfirvöld segja málið mjög alvarlegt og að unnið verði hratt og markvisst að úrlausn þess.