Ný rannsókn sýnir að aldur hjartaþega segi meira til um hjartaheilsu frekar en aldur hjartagjafa. Nature greinir frá en rannsóknin er enn óbirt og óritrýnd.
Þannig lækkar líffræðilegur aldur hjarta sem grædd eru úr eldri einstaklingi í yngri eftir ígræðslu. Að sama skapi hækkar líffræðilegur aldur hjartans sé það fært úr yngri einstaklingi í eldri.
Með líffræðilegum aldri er átt við uppsafnaðan frumuskaða yfir líftíma hjartans.
Rannsóknir á bæði músum og mönnum
Jesse Poganik fer fyrir teymi sem rannsakar öldrun við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Í fyrri hluta rannsóknarinnar græddi teymið misgömul viðbótarhjörtu í mýs á mismunandi aldri. Nokkrum mánuðum seinna voru mýsnar drepnar og mælingar gerðar á metýleringu erfðaefnis þeirra. Metýleringu erfðaefnis má nota til að ákvarða líffræðilegan aldur vefjasýnis.
Greiningin leiddi í ljós að líffræðilegur aldur ígræddra hjarta færðist nær aldri þegans. Þannig sýndu yngri hjörtu í eldri músum aukna öldrun en eldri hjörtu í yngri músum hresstust við.
Í seinni hluta rannsóknarinnar skoðaði teymið hjartaígræðslur sem gerðar höfðu verið við spítala í Boston. Þar komust þau yfir lífsýni sem nota mátti til að mæla metýleringu erfðaefnis eftir ígræðslur þar sem mikill munur var á aldri hjartagjafa og hjartaþega.
Niðurstöðurnar voru á sömu lund og í músarannsókninni. Ígrædd hjörtu voru nær aldri þegans heldur en gjafans.
Sambærilega niðurstöðu mátti lesa úr mælingum á hjartsláttartíðni, veggjaþykkt og áreynsluþoli.
Mikilvægt er að endurtaka rannsóknina með stærri hópi líffæragjafa og -þega. Niðurstöðurnar sýna þó fram á möguleikann á að taka til greina eldri líffæragjafa en áður hefur verið gert.