Njósnastofnun Suður-Kóreu telur að Volodymyr Zelensky hafi greint frá flutningi tveggja norðurkóreskra stríðsfanga frá Úkraínu til Suður-Kóreu til þess að auka almennan stuðning þarlendis við vopnasendingar til Úkraínuhers.
Suðurkóreskur þingmaður gerði þessu skóna í gær og annar upplýsti að stríðsfangarnir hefðu komið til landsins um miðjan september. Þeir væru almennt við góða heilsu og hefðu sjálfir fallist á flutning þangað.
Þar vildu þeir fá tækifæri til að „lifa eðlilegu lífi“, eins og það var orðað. Deilan gæti orðið til að tefja ákvörðun Suður-Kóreumanna um að senda Úkraínumönnum varnarvopn enda hafa þeir verið tregir til þess vegna banns við sölu árásarvopna til ríkja sem standa í stríði.
Zelensky sagði frá flutningi hermannanna tveggja frammi fyrir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku og eins því hversu erfitt hefði verið að ná þeim lifandi, snemma í fyrra.
Suðurkóresk yfirvöld gagnrýndu Zelensky strax harðlega enda væri ítrasta leynd, sem stjórnvöld beggja ríkja hefðu sammælst um, besta leiðin til að tryggja öryggi þeirra og að ættingjar mannanna yrðu ekki fyrir aðkasti stjórnvalda í Norður-Kóreu.
Eins gæti öryggi Suður-Kóreu sjálfrar verið ógnað með uppljóstrun forsetans. Stjórnvöld í Suður-Kóreu kölluðu sendifulltrúa Úkraínu á teppið á mánudag og lýstu þungum áhyggjum af athæfi Zelenskys.