Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir það hrylling að fólk á hjúkrunarheimilum fái sterk geðlyf án þess að vera með alvarlegan geðsjúkdóm.
„Mér finnst þetta bara hryllingur að þetta skuli gerast á þeim stofnunum þar sem eldri borgarar eru að eyða sínu lokaævikvöldi.“
Fjallað var um það í Kveik í gærkvöldi að hátt hlutfall eldra fólks á hjúkrunarheimilum fengi sterk geðlyf, svokölluð geðrofslyf.
Notkun þeirra var yfir viðmiðunarmörkum landlæknis á 18 af 33 hjúkrunarheimilum landsins á síðasta ári. Í þættinum var rætt við aðstandendur sem töldu að ættingjar þeirra hefðu verið lyfjaðir fram úr hófi. Björn segir enga virðingu borna fyrir lífi fólks með þessu.
„Mér finnst þetta mjög sorglegt. Þótt þetta komi kannski ekki á óvart þá er þetta svakalegt,“ segir Björn sem kveðst oft frétta af sambærilegum atburðum og fjallað var um í þætti gærkvöldsins. Við heyrum mjög mikið um þetta.“
Sjálfur telur Björn að undirmönnun á hjúkrunarheimilum eigi þátt í vandanum. „Það er hreinlega verið að kaupa sér frið með þessu sem þarna er – eins ógeðfellt og það er,“ segir hann.
Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, tók í svipaðan streng í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.
„Það vantar fjármagn. Þetta eru láglaunastéttir sem starfa á hjúkrunarheimilum og það vantar þarna sérfræðinga. Það er mikill skortur á þeim. Þannig að þetta endurspeglar það vandamál að það er farið út í svona úrræði,“ sagði hann.
Landssamband eldri borgara stendur fyrir málþingi 12. nóvember næstkomandi um lyfjanotkun eldra fólks. „Við vitum að þetta er í ólestri og að sjá þetta í gærkvöldi er staðfesting á því,“ segir Björn.
„Ég held það sé fyrir ýmsa aðila, bæði ráðamenn þjóðarinnar og þá sem eru með umsýslu með hjúkrunarheimilum, að fara að hugsa sinn gang.“