Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi frá klukkan þrjú í nótt til eitt síðdegis á morgun.
Það hvessir mjög í nótt og spáir Veðurstofan suðaustan 15–23 metrum á sekúndu, það er hvassviðri eða stormur. Vindur getur farið yfir 35 metra á sekúndu í hviðum á nokkrum stöðum.
Ferðaveður verður varasamt, sérstaklega fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Stutt er stórra högga á milli í veðrinu því þessa stundina er í gildi gul viðvörun á Suðausturlandi vegna mikillar rigningar.