Spáð er suðaustan 15-23 metrum á sekúndu og vindhviðum yfir 35 metrum á sekúndu á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi frá klukkan þrjú aðfararnótt fimmtudags. Viðvaranirnar verða í gildi til klukkan ellefu á Austurlandi og klukkan 13:00 á Norðurlandi eystra.
Gul viðvöurun vegna talsverðrar eða mikillar rigningar tók gildi fyrir Suðausturland og miðhálendið klukkan þrjú í nótt. Varað var við talsverðum vatnavöxtum í ám og lækjum sem ykju líkur á flóðum, skriðuföllum og slysum.