Leigufélagið Reitir hefur ákveðið að frysta verð á öllum leigusamningum sínum til áramóta. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að þetta sé gert til að styðja við leigutaka sína og gera þeim kleift að stuðla að lækkun verðlags og þar með stöðugleika í efnahagslífinu.
Nokkrar verslanakeðjur hafa undanfarið tilkynnt að þær hyggist frysta verð eða lækka tímabundið.
Um 500 fyrirtæki og stofnanir leigja húsnæði af fyrirtækinu. Þar á meðal eru smásölu- og dagvöruverslanir, iðnaðar-, þjónustu- og þekkingarfyrirtæki auk hótela.