Sjúkratryggingar Íslands verða að veita félagasamtökunum Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ í heild sinni. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Rótin krafðist þess að fá aðgang að samningi sem undirritaður var í desember í fyrra. Þegar samtökin fengu samtökin var búið að afmá ýmsar upplýsingar. Þar á meðal voru upplýsingar um hámarksgreiðslur, einingarverð, rekstrarkostnað og hámarksþóknun vegna tiltekinna þjónustuþátta og áætlað árlegt þjónustumagn.
Rótin leitaði til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem komst að þeirri niðurstöðu að hinar afmáðu upplýsingar féllu ekki undir neinar þær undanþágureglur frá upplýsingarétti almennings sem kveðið er á um í upplýsingalögum. Því verða Sjúkratryggingar að afhenda samninginn í heild sinni.