Samherji hefur selt uppsjávarskipið Margréti EA til Færeyja, þremur árum eftir að Samherji eignaðist skipið.
Greint er frá sölunni á vef Samherja. Þar kemur fram að færeyska útgerðin Argo hafi keypt Margréti og breytt nafni hennar í Ísborgu.
Skipið er 18 ára gamalt, smíðað í Noregi 2008. Það er 72 metra langt og 15 metra breitt.