Sjúkratryggingar Íslands þurfa að veita Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ í heild sinni, þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Slegið er á puttana á Sjúkratryggingum í niðurstöðunni en þar segir að stofnunin hafi ekki afgreitt beiðni Rótarinnar innan sjö daga frá móttöku. „Sjúkratryggingum Íslands er bent á að gæta framvegis að þessu atriði,“ segir í niðurstöðunni.
Rótin á að fá allan samning Sjúkratrygginga við SÁÁ