Hildur Markúsdóttir var að naglalakka sig inni á baðherbergi þegar hún varð fyrir því áfalli að missa sjón á öðru auganu. Hildur, sem er heilbrigð kona á fertugsaldri, fer yfir þessa reynslu sína í þættinum Fullorðins með Kiddu Svarfdal. Hildur tengir áfallið við bólusetningu við Covid en hún fór líkt og margir aðrir höfuðborgarbúar í Laugardalshöllina. Hildur segir að nánast um leið hafi hún fundið fyrir einhverju.
Hildur var að lakka á sér táneglurnar þegar áfallið kom: „Ég sá að það stóð manneskja í speglinum en ekki andlit“