Neyðarlínu barst símtal frá einum þeirra fimm sem grunaðir eru um einhvers konar afbrot við Fairford-herflugvöllinn í Bretlandi.
Símtalið barst um það bil klukkustund áður en kona tilkynnti um grímuklædda menn á bílum nærri flugvellinum.
BBC og The Times greindu frá þessu í morgun en ekkert liggur fyrir hvað manninum og lögreglu fór á milli. Fimmmenningarnir voru upphaflega handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverks en var fljótlega sleppt. Lögregla fann ekkert sprengiefni í bílum mannanna.