Að minnsta kosti einn var drepinn og þrír til viðbótar særðust í eldflauga- og drónaárás Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv og nærliggjandi héruð í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu hermálayfirvalda í Kyiv.
Innviðir eru sagðir hafa laskast í árásunum ásamt íbúðarhúsum, vöruskemmum og farartækjum. Borgarstjórinn Vitali Klitschko sagði í færslu á Telegram fyrr í nótt að eldar loguðu í íbúðahverfi í Kyiv.