Stjórnarmyndunarviðræður hafa gengið fremur brösuglega eftir kosningar í Svíþjóð og stjórnarkreppa gæti verið í uppsiglingu. Fyrir hádegi fara formenn flokkanna á fund þingforseta og gert er ráð fyrir að einhverjum þeirra verði falið að vera næstur til að spreyta sig á viðræðum.
Líklegust til að leiða viðræðurnar eru Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmanna og Ulf Kristersson, fráfarandi forsætisráðherra og formaður Moderaterna. Vart mátti greina mun á milli hægri og vinstri vængs, svo jafnt féllu atkvæðin en vinstrimenn voru skör framar.
Jafnaðarmenn voru sigurvegarar kosninganna og stærsti flokkurinn á vinstri vængnum með 28% atkvæða. Moderaterna voru næst stærstir með 19,8% atkvæða. Andersson hefur þegar gert tilraun til að mynda ríkisstjórn en á mánudaginn lagði hún árar í bát.
Var það vegna þess að Vinstriflokkurinn, sem Jafnaðarmenn áttu meðal annars í viðræðum við, hafði þá tilkynnt að hann myndi styðja fulltrúa Moderaterna, Andreas Norlén, í stöðu þingforseta frekar en fulltrúa Jafnaðarmanna.
Enginn vill umboðið
Norlén, sem hefur gegnt embætti þingforseta síðan árið 2018, hefur nú verið endurkjörinn og er það í hans höndum að afhenda stjórnarmyndunarumboð á ný. Hafa margir, þar á meðal Andersson sjálf, nefnt Kristersson sem líklegan kandídat þar sem flokkur hans hlaut næstflest atkvæði á eftir Jafnaðarmönnum. Hann virðist þó hafa litla trú á að honum myndi takast betur upp en Andersson.
Stjórnmálaskýrandi sænska ríkisútvarpsins, SVT, Mats Knutson, fór yfir þessa snúnu stöðu í pistli gær og bendir á að svo virðist vera sem enginn vilji mynda ríkisstjórn. Verði engin lausn fundin á málinu gæti farið svo að Svíar þyrftu að ganga aftur til kosninga.
Fyrir hádegi í dag mun Norlén boða formenn flokkanna á fund og er þess vænst að hann muni fela nýjum leiðtoga að fara fyrir stjórnarmyndunarviðræðum. Það getur þingforseti aðeins gert fjórum sinnum áður en boða skal til kosninga á ný.