Delcy Rodriguez, sem hefur verið bráðabirgðaforseti Venesúela síðan í janúar, viðurkenndi í gær að lög landsins um hatursorðræðu hefðu verið misnotuð til réttlætingar handtökum á tugum andstæðinga stjórnvalda.
Undanfarinn áratug hafa tugir stjórnmálaleiðtoga, andófsfólks, blaðamanna, mótmælenda og áhrifavalda verið handteknir sakaðir um að kynda undir hatursorðræðu. Stjórnarandstaðan segir lögin hafa verið notuð sem ofsóknartæki til að bæla niður allt andóf.
Slík brot geta leitt af sér allt að tuttugu ára fangavist. Bandaríkjastjórn þrýsti á Rodriguez að beita sér fyrir sakaruppgjöf hundraða fanga sem margir höfðu hlotið dóm á grundvelli laganna.
Forsetinn hefur hvatt þjóðþingið til að endurskoða ákvæði laganna og afglæpavæðingar þeirra brota sem þar eru tiltekin. Mannréttindasamtökin Foro Penal segja að 324 pólitískir fangar sitji enn í fangelsi.
Mannréttindavaktin hvetur til þess að þessi lög verði aflögð líkt og fleiri sem urðu til í stjórnartíð Nicolasar Maduro. Bandarískir hermenn námu hann á brott í hernaðaraðgerð snemma í janúar.
Rodriguez sjálf lék lykilhlutverk við setningu laganna árið 2017 þegar hún var forseti stjórnlagaþings landsins. Hún kveðst enn trúa á megininntak laganna þótt þeim hafi verið misbeitt, enda þurfi að efla umburðarlyndi og kveða hatursorðræðu í kútinn.