Bandaríkjamenn ganga senn að kjörborðinu og kjósa til þings. Hinn 3. nóvember eru öll 435 sætin í fulltrúadeildinni í húfi og 35 sæti af hundrað í öldungadeildinni.
Demókratar hafa lagt ofuráherslu á að ná stjórn á annarri eða báðum deildum þingsins til að geta staðið í vegi fyrir ætlunum Donalds Trump forseta.
Fulltrúadeildin getur til dæmis sett á laggirnar ýmis konar rannsóknarnefndir sem mega kalla stjórnarliða til skýrslutöku og heldur auk þess um pyngju alríkisstjórnarinnar. Þar að auki getur fulltrúadeildin kært forseta til embættismissis, eins og gerðist á fyrra kjörtímabili Trumps.
Öldungadeildin í augsýn fyrir Demókrata
Það eru gömul sannindi og ný að flokkur forsetans kemur illa út úr kosningunum á miðju kjörtímabili hans. Sem dæmi má nefna að í 38 af síðustu 42 miðkjörtímabilskosningum (frá upphafi núverandi tveggja flokka kerfis) tapaði flokkur forsetans fylgi í fulltrúadeildinni.
Á kortinu hér fyrir neðan má prófa að merkja tvísýnustu ríkin í öldungadeildarkosningunum öðrum hvorum flokknum og sjá mögulegar niðurstöður.
Lengi hefur stefnt í að fulltrúadeildin væri í dauðafæri fyrir Demókrata að þessu sinni, enda gæti meirihluti Repúblikana ekki verið tæpari. Þeir eru sem stendur með 218 fulltrúa, eins þingmanns meirihluta – og allar skoðanakannanir gera ráð fyrir að Demókratar nái þar meirihluta.
Í öldungadeildinni var leiðin grýttari. Til að ná þar stjórn þurfa Demókratar að halda öllum sínum sætum og skáka Repúblikönum í nokkrum ríkjum þar sem kjósendur voru hliðhollir Trump í síðustu kosningum.
Það var ansi fjarlægur draumur framan af þessu ári en síðustu vikur og mánuði, eftir því sem sverfur að efnahagsstöðu almennings, hefur fylgi Repúblikana víða um land verið í frjálsu falli. Demókratar virðast því í kjörstöðu, þó mögulega sé of bratt að tala um stórsigur eða mögulega „Bláa bylgju“.
7 ríki til að fylgjast með
Misjafnt er hversu mörg ríki eru talin sem sérstök lykilríki í úttektum fjölmiðla og könnunarfyrirtækja, en í þessum sjö ríkjum hér að neðan ber einna minnst á milli frambjóðenda flokkanna.
Veðmálafyrirtæki blanda sér í pólitík
Sú nýlunda er í þessari kosningabaráttu að veðmálafyrirtæki eru farin að gera sig gildandi í pólitískum bollaleggingum þar sem könnunarfyrirtæki og spálíkön hafa stýrt umræðu.
Þessi nýju veðmálafyrirtæki, þar sem Kalshi og Polymarket ber hvað hæst, stigu fyrst inn á sviðið í kosningunum 2024. Hjá þeim er hægt að veðja um allt milli himins og jarðar og stjórnmál eru engin undantekning.
CNN fjallaði nýlega um þessi nýmæli og segir þar meðal annars að frambjóðendur og starfsfólk þeirra reiði sig í sífellt frekari mæli á greiningu fyrirtækjanna.
Veðmálafyrirtækin hafa líka reynst nokkuð forspá. Til dæmis mat Polymarket sigurlíkur Trumps mun meiri en Kamölu Harris viku fyrir síðustu kosningar, þó skoðanakannanir mætu Harris með eins prósentustigs forskot á Trump allt fram á kjördag.
Þau koma kannski ekki í stað kannana, en bæta við ákveðinni vídd þegar fylgisþróun er skoðuð.
Hvernig er staðan í þingdeildunum einmitt núna?
Síðustu tvö ár hafa verið einhver þau átakamestu og viðburðaríkustu sem um getur í bandarískum stjórnmálum. Í nóvember 2024 vann Donald Trump sögulegan sigur í forsetakosningunum, en það sem skipti ekki síður máli var að Repúblikanaflokkur hans náði meirihluta í báðum þingdeildum, fulltrúadeildinni og öldungadeildinni.
Með öruggan meirihluta íhaldsfólks í hæstarétti var í raun fátt í efstu lögum stjórnkerfisins sem ætti að geta haldið aftur af Trump og hans fyrirætlunum á kjörtímabilinu. Og hann lét sannarlega á það reyna strax og hann settist aftur, sigurreifur, í forsetastólinn.
Á fyrsta degi byrjuðu forsetatilskipanir að flæða frá Sporöskjustofunni (Oval Office), en þær nota forsetar oftar en ekki til að sniðganga þingið og koma málum fljótt í gegn.
Trump hefur haldið uppteknum hætti og eiginlega hliðarsett fulltrúadeildina gjörsamlega.
Hún var enda veikasti hlekkurinn í valdakeðju Repúblikana. Þeir voru einungis með fimm sæta meirihluta, 220 sæti gegn 215, en auk þess reyndust margir einstakir þingmenn tregir í taumi og einhverjir hafa í raun gengið úr skaftinu.
Eins og fram kom hér að ofan hangir meirihlutinn nú á einu sæti.
Í öldungadeildinni var staða Repúblikana mun betri eftir kosningarnar 2024. Þeir eru með 53 sæti af 100 og þeirra fólk þar er ekki eins ístöðulítið og tíðkast hefur í fulltrúadeildinni.
Yfirgnæfandi líkur á að fulltrúadeildin falli með Demókrötum
Eins og sakir standa eru flestir greinendur á því að Demókratar eigi sigur vísan í fulltrúadeildinni.
Í könnunum þar sem þátttakendur eru einungis spurðir út í stuðning við flokk, en ekki einstaka frambjóðendur, eru Demókratar með átta til tíu prósentustiga forskot. Það segir þó ekki alla söguna því að kjördæmin eru svo til eins ólík og þau eru mörg.
Miðað við flestar kosningaspár munu Demókratar þó ná um 230 þingsætum gegn 205 sætum Repúblikana.
Stór óvissuþáttur í þeirri spá er samt kjördæmabreytingar sem flokkarnir hafa ráðist í í aðdraganda kosninganna. Þar reyndu þeir (sérstaklega Repúblikanar) að dreifa líklegum kjósendum andstæðinga yfir í kjördæmi þar sem þeir töldu sig eiga sigur vísan.
Það vopn gæti hins vegar snúist í höndum þess sem á heldur ef teflt er á tæpasta vað. Demókratar eru meðal annars farnir að leggja fjármuni í baráttu í kjördæmum sem áður var borin von að þeir gætu landað sigri.
Ef við horfum á spálíkön veðmálafyrirtækjanna telja Kalshi og Polymarket bæði að meira en 90% líkur sé á að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni. Vandasamt er þó að spá með vissu hvernig endanleg sætaskipting verður.
Tvísýnt í öldungadeildinni
Mun meiri spenna er í öldungadeildinni þar sem brugðið getur til beggja vona. Demókratar þurfa að ná 51 sæti til að tryggja sér meirihluta, þar sem J.D. Vance varaforseti getur komið inn fyrir Repúblikana ef atkvæði standa jöfn – 50 á móti 50.
Tæknilega séð eru 35 sæti í boði að þessu sinni, en í raun stendur slagurinn um innan við tíu sæti (sjá kortið hér að ofan). Demókratar hófu slaginn í brekku þar sem flest baráttusætanna eru í ríkjum sem Trump vann árið 2024.
Á móti kemur að forsetinn er ótrúlega óvinsæll um þessar mundir, sérstaklega í þeim málum sem helst brenna á kjósendum – til dæmis framfærslukostnaði og efnahagsmálum.
Þá sýna kannanir að Demókratar séu almennt spenntari fyrir að fara á kjörstað. Í könnun Reuters og Ipsos sögðust 42% Demókrata „mjög spenntir“ fyrir að kjósa, en aðeins 28% Repúblikana.
Fari þessar lykilviðureignir og aðrar sem eru ekki eins tvísýnar (til dæmis í Norður Karólínu þar sem Demókratar ættu að snúa einu sæti) eins og kannanir og veðmálafyritæki gefa til kynna ætti það að skila Demókrötum 52-53 sætum og meirihluta í öldungadeildinni.
Repúblikanar með þykkara veski fyrir lokaáhlaup
Hins vegar er mánuður enn lengri en vikan fræga í pólitík og rétt farið að hitna í kolunum. Repúblikanar búa að mun meiri fjármunum til að koma sínum frambjóðendum á framfæri (og kannski ekki síður til að berja á andstæðingum) og þess utan hefur Trump lagt í dýra auglýsingaherferð fyrir sitt fólk á kostnað skattborgara.
Einu tölurnar sem skipta máli þegar allt kemur til alls er atkvæðafjöldinn sem kemur upp úr kjörkössunum.