Lögreglu barst heldur óvenjuleg tilkynning úr Breiðholti á kvöld- og næturvaktinni þegar vegfarandi vakti athygli fyrir „afbrigðilega hegðun“ eins og það er orðað.Þegar lögregla kannaði málið kom í ljós að einstaklingurinn var einfaldlega í sveppaleit – og var við þá iðju íklæddur indíánabúningi.Ýmis önnur verkefni komu á borð lögreglu. Tilkynnt var um hópasöfnun ungmenna við verslunarkjarna í hverfi 109 og um grunsamlegar mannaferðir í hverfi 112. Þegar lögregla kannaði síðarnefnda málið var hins vegar ekkert óeðlilegt að sjá.
Tilkynnt um „afbrigðilega hegðun“ manns í indíánabúningi