Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um afbrigðilega hegðun manns í Neðra-Breiðholti í gærkvöld eða nótt. Sá reyndist vera við sveppaleit íklæddur indíánabúningi að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar.
Einnig barst tilkynning um að ungmenni hefðu hópast saman við verslunarkjarna í hverfinu. Gestum veitingastaðar í Kópavogi var vísað á brott eftir aðfinnsluvert háttalag og lögreglumenn gripu í tómt eftir tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir í Árbæjarhverfi.