Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala telur læknisþjónustu af hálfu félagasamtaka vera barn síns tíma. Útlit er fyrir að Landspítali hlaupi tímabundið undir bagga með SÁÁ í læknisþjónustu á Vogi.
Aðeins 14 sjúklingar eru inniliggjandi á Vogi vegna manneklu en þar eru 45 rými. Enginn var lagður inn á Vog í síðustu viku og enn hafa engir skjólstæðingar verið innritaðir. Skortur á læknum, uppsagnir og veikindaleyfi starfsfólks hefur orðið til þess að mun færri fá meðferð en vera ætti.
Jón Áki Jensson, framkvæmdastjóri lækninga, sagði upp í gær eftir einungis tvær vikur í starfi. Hann var ráðinn inn tímabundið eftir að forveri hans sagði starfi sínu lausu eftir að fyrrverandi forstjóri hætti. Jón sagði í samtali við fréttastofu að tími hans í starfi hafi verið vægast sagt krefjandi og fullreynt að finna lausn á vandanum eins og staðan er. Hann telur nauðsynlegt að önnur stofnun, sem hafi starfsfólk við hæfi, stígi inn til aðstoðar. Hann vinni þó sinn uppsagnarfrest.
Runólfur var gestur í Kastljósi í kvöld ásamt Maríu Heimisdóttur landlækni.
Runólfur segist hafa átt von á að til Landspítalans yrði leitað. Unnið sé hörðum höndum að því að koma á læknisþjónustu á Vogi tímabundið en ekki sé um auðugan garð að gresja.
„Læknar á Landspítala eru stöfum hlaðnir. En ég held að við getum fundið lausn á þessu tímabundið og mögulega með því að fá inn aðila utan frá sem bera traust til okkar. Ég held að að einhverju leyti stafi þetta af því að læknar sem leitað hefur verið til beri ekki traust til samtakanna.“
Tími til að heilbrigðisyfirvöld komi að þjónustunni
Runólfur segir SÁÁ hafa lyft grettistaki þegar starfsemin hófst á Vogi á sínum tíma. Hann er þó þeirrar skoðunar að heilbrigðisrekstur á vegum félagasamtaka sé barn síns tíma.
„Ég held að núna sé kominn tími til að heilbrigðisyfirvöld komi með ákveðnari hætti að daglegum rekstri,“ segir Runólfur.
Hann telur að SÁÁ verði áfram lykilaðili í þjónustunni. Hægt sé að útfæra hana þannig að ábyrgð á heilbrigðisþjónustunni verði aðskilin frá öðrum rekstri SÁÁ.