Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Fimm menn, allir breskir ríkisborgarar á þrítugsaldri, voru handteknir grunaðir um að hafa brotið lög um sprengiefni og síðar skipulagninu hryðjuverks eftir að þeir sáust aka um á sendiferðabílum nærri bresku herstöðinni síðasta sunnudag, þann 27. september.
Grunur lék þá á að sprengjur væru í bílunum þremur og leiddi það til umfangsmikilla öryggisaðgerða í kringum herstöðina sem er rekin af Bandaríkjaher en notuð af bæði breska og bandaríska flughernum.
Þeim var sleppt gegn tryggingu í gær, mánudaginn 28. september, en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands sagði að þeir yrðu undir nánu eftirliti og takmarkanir yrðu settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra.
Mennirnir voru handteknir eftir að tilkynning barst frá bónda á svæðinu um grunsamlega menn á ferðinni á sendiferðabílum. Þá hafði bóndinn séð mennina í lambhúshettum við bílana og reyndu einhverjir þeirra að fela sig þegar lögreglan ók fram hjá þeim.
Búið var að merkja bílana tilteknu fyrirtæki, en nafnið var rangt og rangur litur á merki fyrirtækisins. Þetta fyrirtæki flytur eldsneyti á bóndabæi í Bretlandi og hafði verið talið líklegt að tunnur af bensíni fyndust í bílnum. Það reyndist svo vera rétt.
Meðal þeirra sem lýstu yfir furðu sinni á því að mönnunum fimm hafi verið sleppt eru Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en sá síðarnefndi sagðist ekki átta sig á því af hverju Bretar slepptu mönnunum úr haldi.
Þá kallaði Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands ráðherra sína til fundar vegna atviksins. Um var að ræða svonefndan COBRA-fund, þar sem ráðherrar, háttsettir embættismenn og aðrir lykilaðilar hittast til að samræma viðbrögð við alvarlegum atburðum.