Samfylkingin eykur fylgisforskot sitt á Sjálfstæðisflokkinn um tæp þrjú prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Á meðan Samfylkingin bætir við sig um prósentustigi minnkar fylgi Sjálfstæðisflokksins um tvö prósentustig.
Könnunin var gerð allan septembermánuð og er því sú fyrsta sem Gallup gerir eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, þar sem þjóðin hafnaði því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Samfylkingin er sem fyrr stærsti flokkurinn með tæpt 31% og fengi 23 þingmenn ef kosið yrði nú.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tæp 25% sem dygði til að fá 18 þingmenn kjörna.
Miðflokkurinn mælist með 15%, rúmu hálfu prósentustigi minna en síðast og fengi miðað við það 11 þingmenn.
Viðreisn mælist með 10,6 prósent, tæpu prósentustigi meira en síðast og fengi sjö menn kjörna, en Framsóknarflokkurinn bætir við sig tæpu prósentustigi og mælist með tæp 6%, sem gæfi þeim fjóra þingmenn.
Flokkarnir tveir sem mest börðust fyrir því að þjóðin segði já í þjóðaratkvæðagreiðslunni, Samfylking og Viðreisn, bæta því samanlagt við sig um tveimur prósentustigum, á meðan nei-flokkarnir þrír missa um tvö prósentustig
Fylgi Flokks fólksins dregst saman um tæpt prósentustig og er nú fjögur prósent, sem dygði ólíklega fyrir þingsæti. Flokkurinn mældist líka með fjögur prósent í maí, en annars þarf að leita aftur til sumarsins 2021 eftir jafnlakri mælingu.
Flokkurinn hefur verið töluvert milli tannanna á fólki í mánuðinum eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og varaformaður, opnaði sig um viðskilnaðinn við flokkinn.
Vinstri græn mælast svo með 3,7 prósent, Píratar 2,7 og Sósíalistar 2,4 – enginn þeirra næði mönnum á þing.
Stuðningur við ríkisstjórnina er 49 prósent, prósentustigi minni en í síðasta mánuði. Ef kosið yrði nú og niðurstöðurnar yrðu í samræmi við þessa könnun fengju ríkisstjórnarflokkarnir 30 þingmenn og þar með væri stjórnin fallin. Ríkisstjórnin er nú með 35 þingmenn, en 32 þarf til að mynda naumasta meirihluta.