Bandaríski blaðamaðurinn Evan Gershkovich, sem dæmdur var í 16 ára fangelsi í Rússlandi, segist hafa verið veiddur í gildru rússneskra stjórnvalda. Þetta segir hann í nýju viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC. Ný bók þar sem hann fjallar um fangavistina kemur út á fimmtudag.
Tók lengri tíma að ná fangelsinu úr Gershkovic en að ná honum úr fangelsinu
„Það tók 16 mánuði að ná Evan Gershkovich út úr rússnesku fangelsi. Það tók fleiri, fleiri mánuði að ná rússneska fangelsinu út úr Evan Gershkovich.“ Á þessum orðum hefst viðtal The New York Times við Gershkovich í dag.
Í draumum sínum var hann enn í pínulitla klefanum sínum, sem var rétt nógu stór fyrir einn fullorðinn mann til að standa og rétt svo nógu stór til að taka sex skref. Á vökustundum tók hann reiðisköst, fékk kvíðaköst og grét. Hljóð í dinglandi lyklum var nóg til þess að flytja hann aftur inn í fangelsið.
Í viðtali The New York Times er tekið fram að honum líði betur í dag, martraðirnar séu hættar og að hann sé tilbúinn að tala um reynslu sína opinberlega. Í dag kom út bók eftir Gershkovich, This Cursed Beautiful Land.
Gershkovich lýsir bókinni sem endurminningum um prísunda í Rússlandi. Hann segir hana þó líka frásögn fangelsisvistarist stærri hóps, almennings í Rússlandi, sem býr í því sem líkja mætti við opið fangelsi undir stjórn Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta.
„Þegar þetta er FSB veistu að þetta hefur verið skipulagt“
En rifjum aðeins upp mál Gershkovich frá upphafi. Hann hafði búið í Rússlandi síðan 2017 og vann fyrir bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal í Moskvu.
Gershkovich var handtekinn í borginni Yekatrinaburg, sem er í um 1600 kílómetra fjarlægð frá Moskvu. Þar var hann að hitta, að hann hélt, heimildarmann fyrir frétt.
Hann sat með heimildarmanninum á veitingastað þegar hópur grímklæddra manna gekk upp að honum og sagði „við bókuðum þetta borð“. Furðulega tekið til orða en Gershkovich segir þetta hafa verið snjallt þar sem hann hafi gjörsamlega frosið og ekki vitað hvernig hann átti að bregðast við.
Hann var handtekinn á staðnum af rússnesku leyniþjónustunni, FSB, og heimildamaðurinn hvarf inn í fjöldann.
„Á þessu augnabliki áttar þú þig á því að þetta sé virkilega alvarlegt. Þegar þetta er FSB þá veistu að þetta hefur verið skipulagt,“ segir Gershkovich við BBC.
Hann var handsamaður fyrir að búa yfir upplýsingum um rússneskt varnarmálafyrirtæki og stjórnvöld sögðu hann vera að safna upplýsingum um framleiðslu á hergögnum fyrir Leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA.
Umfangsmestu fangaskipti frá lokum kalda stríðsins
Stuttu eftir að hann var handtekinn segist Gershkovich hafa áttað sig á því að hann hafi ekki verið yfirheyrður eða pyntaður, sem eru algengar aðferðir leyniþjónustunnar sem hún notar á njósnara. Það var farið með hann sem verðmæta vöru frekar en sannan óvin ríkisins.
„Það var furðulegt augnablik, raunar mikill léttir sem helltist yfir mig þá. Ég áttaði mig á því að þeir komu ekki fram við mig eins og alvöru njósnara. Þeir leiddu mig í gildru og skálduðu upp mál gegn mér svo ég yrði verðmætur gísl, peð í stærri leik.“
Hann áttaði sig á því að hann yrði sennilega í haldi í einhvern tíma en að það yrðu ekki 12 til 20 ár. Það hafi hjálpað honum að halda ró sinni og sjálfsaga í fangelsinu og hjálpað honum að sjá fyrir hvað kæmi næst, eins og hugsanleg fangaskipti.
„Ég gerði ráð fyrir að það yrði áberandi mál og myndi valda miklu fjaðrafoki um allan heim. Ég meina, þetta er erlendur fréttaritari The Wall Street Journal.“
Gershkovic hafði rétt fyrir sér. Mál hans vakti gríðarlega athygli um allan heim og Joe Biden, sem var þá Bandaríkjaforseti, sagði það í hæsta forgangi að fá Gershkovic heim.
Úr urðu umfangsmestu fangaskipti Rússa og vestrænna ríkja frá lokum kalda stríðsins. Gershkovich var ekki sá eini sem var sleppt. Stjórnarandstæðingurinn Vladimir Kara-Muza, hermaðurinn Paul Whelan og Lilia Chanysheva, fyrrverandi skrifstofustjóri Navalnys, voru í hópi 26 fanga sem voru leystir úr haldi.
Gershkovich telur rússnesk stjórnvöld hafa skipulagt fangaskiptin til þess að endurheimta Vadim Krasikov, launmorðingja FSB sem sat í lífstíðarfangelsi í Þýskalandi fyrir að ráða fyrrverandi téténskan aðskilnaðarsinna af dögum í Berlín 2019. Þýskir dómarar töldu aftökuna gerða að fyrirskipan rússneska ríkisins.
„Þeir sluppu við afleiðingarnar að því marki að engum refsiaðgerðum var beitt vegna málsins. Sé litið á málið af nokkurri kaldhæðni mætti jafnvel segja að þeir hafi staðið klókt að þessu,“ segir Gershkovich.
Fékk að sofa og maturinn þokkalegur
Gershkovich er sonur sovéskra gyðinga sem fluttu til Bandaríkjanna. Hann ólst upp í Princeton í New Jersey-ríki og talar rússnesku reipbrennandi. Hann flutti til Moskvu til að kynnast betur og fjalla um heimkynni fjölskyldu sinnar.
Gershkovich var handtekinn í lok mars 2023, rétt rúmlega ári eftir allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu. Hann var fyrsti bandaríski blaðamaðurinn til að vera handtekinn í Rússlandi fyrir meintar njósnir frá falli Sovétríkjanna.
Gershkovich var haldið í Lefortovo-fangelsi í Moskvu, alræmdu fangelsi sem hefur hýst fjölda þekktra fanga, meðal annars stjórnarandstæðinga og andófsmenn. Fangelsið gegndi veigamiklu hlutverki í hreinsunum Stalíns 1936 til 1938 og var notað til pyntinga og fjöldaaftaka.
Gershkovich segir vistina í fangelsinu hafa verið mjög einangrandi. „Það hefur áhrif á þig andlega.“
Hann tók þó fram að það hefði verið hugsað ágætlega um hann. „Ég fékk að sofa, maturinn var þokkalegur.“
Tók mest á þegar Navalny lést
Í bókinni fjallar hann um samband sitt við meðfanga sinn, Seryoga, sem var með honum í fangaklefa mestallan tímann. Hann fjallar einnig um Nikita, annan fanga sem var með honum í klefa í stuttan tíma. Honum var á endanum sleppt og hann var sendur á víglínuna í Úkraínu þar sem hann féll.
Gershkovich segir fangavistina hafa tekið mest á þegar stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalny lést í fangelsi í febrúar 2024. Gershkovic stóð í þeirri trú að Navalny yrði hluti af fangaskiptum sem myndu leiða til frelsis hans, allt þar til Navalny lést.
„Það gjörsamlega braut mig niður í nokkurn tíma þegar Navalny lést. Ég skammaði sjálfan mig fyrir að hafa ekki hugsað fyrst um hann. Ég hugsaði fyrst um sjálfan mig því þá voru fangaskiptin farin að taka á sig mynd.“
Gershkovich hélt að hann myndi verða í fangelsi í mörg ár. Í júlí 2024 samdi Biden við Rússana um fangaskiptin. Biden tók á móti Gershkovich og hinum föngunum, ásamt Kamölu Harris varaforseta, á Andrews-herstöðinni í Maryland kvöldið sem þeim var sleppt.
Gershkovich segist hafa faðmað Biden. Í bókinni lýsir hann því að Biden hafi boðið honum að ræða við sig um reynsluna, ekki sem forseti og blaðamaður heldur bara sem menn. Hurð Bidens væri alltaf opin ef hann hefði áhuga. Gershkovich upplýsti ekki í viðtalinu við The New York Times hvort hann hafi þegið boð Bidens.
Sektarkennd yfir því að frelsi hans hafi orðið til þess að morðingi var látinn laus
Gershkovich segir nýja upplifun hafa tekið við eftir að honum var sleppt og hann komst aftur til heimkynna sinna í Bandaríkjunum. Hann segist hafa verið yfirbugaður af sektarkennd yfir því að frelsi hans hafi orðið til þess að morðingi á borð við Krasikov hafi verið látinn laus.
Hann segir að um tíma hafi hann misst stjórn á skapi sínu ef hann borðaði ekki hádegismat á réttum tíma því hann hafi verið svo vanur fangelsislífinu. Hann skrifar í bókinni að hann hafi fundið fyrir togstreitu og jafnvel þrá eftir lífinu í fangelsinu.
Hann hefur verið hjá sálfræðingi um lengri tíma og loksins jafnað sig, segir hann. Það hafi tekið langan tíma en hann hafi náð að vinna úr ýmsum af þessum málum, ekki bara með tímanum heldur með því að vinna í þeim sérstaklega.
Gershkovich býr í Berlín með rússneskri kærustu sinni, Masha Borzunova. Þau voru par áður en hann var handtekinn. Aðspurður hvort hann myndi snúa aftur til Rússlands segir Gershkovich nei, ekki meðan Pútín Rússlandsforseti sé við völd.
Þrátt fyrir allt sem hann gekk í gegnum segist hann enn vona að landið verði frjálst aftur, eða að minnsta kosti nógu frjálst til að hann geti snúið þangað aftur.
„Ég met þetta land mikils, stór hluti fjölskyldu minnar er þaðan, kærastan mín er þaðan. Ég myndi gjarnan vilja koma þangað aftur einn daginn. Ég held samt að það gerist í bráð en maður getur vonað.“