Konu sem er frá einu af ríkjum Afríku hefur verið vísað úr landi en umsókn hennar um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara var hafnað af Útlendingastofnun og hefur nú verið staðfest af kærunefnd útlendingamála. Konan er raunar skilin við þennan íslenska eiginmann en það breytti engu um niðurstöðu málsins að hann beitti hana margvíslegu ofbeldi á meðan sambandi þeirra stóð.
Vísað úr landi eftir að hafa verið beitt ofbeldi af íslenskum eiginmanni sínum