„Við hyggjumst fjölga mannkyni. Stúlka væntanleg á vettvang í lok janúar!,“ skrifar Kristín í færslu á Facebook.
Greint var frá því í febrúar síðastliðnum að Kristín og Kolbeinn væru nýtt par og virtist sem þau hefðu fundið ástina í stjórnarráðinu.
„Lífið er gott og skemmtilegt,“ skrifar Kristín að auki.
Kristín er fædd árið 1993 og vann um árabil hjá fréttastofu Sýnar, sem blaðamaður, í fréttum og sem þáttastjórnandi Ísland í dag. Kolbeinn er fæddur árið 1997 og hefur áður meðal annars starfað hjá Samgöngustofu og mennta- og barnamálaráðuneytinu.