Atvinnuvegaráðherra segir lagareldi þurfa að byggjast á vísindum, ábyrgri auðlindanotkun og trausti almennings. Þetta kom fram í ávarpi sem hún flutti á Lagarlífi, ráðstefnu um lagareldi sem haldin er í dag og á morgun.
Á ráðstefnu um lagareldi í Hörpu sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra að heildarlöggjöf væri í vinnslu. Hún segir ágreining innan geirans vera meðal þess sem stóð í vegi fyrir afgreiðslu frumvarps á síðasta þingári.
Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri ráðstefnunnar, segir greinina ekki geta lifað við þá lagasetningu sem sé í gangi núna.
„Hún er ekki í samkeppnishæf við Norðmenn og Færeyinga og ef hún á að geta blómstrað þá verður að taka á þessu. Þau verða að fá samkeppnisumhverfi þannig að fjárfestar séu tilbúnir til þess að leggja peninga í frekari uppbyggingu.“
Daníel Jakobsson, framkvæmdastjóri Arctic Fish, segir samstöðu í greininni um hvað menn vilja: „En auðvitað draga menn rauðu strikin á mismunandi stöðum.“
Frá 2020 hefur greinin tapað 20 milljörðum. Daníel segir laxaverð lágt um þessar mundir en opinber gjöld há. „Greinin vill þetta frumvarp í gegn, það er alveg klárt en það eru svona tvö þrjú atriði, meðal annars skattarnir sem fólk vill útfæra betur.“
Hann segir vöxt greinarinnar hægari en áður. Arctic Fish og fleiri fyrirtæki hafi stöðvað allar fjárfestingar á Íslandi þar til reikningsdæmið líti betur út.
„Ég held að þetta sé ekki sjálfgefið að þetta takist á Íslandi. Fiskeldi.“
Þó sé fiskur úr eldi í dag um 7% af útflutningi og um 900 manns starfi í greininni.