Ríkisstjórn Spánar hefur brugðist við ákalli mótmælenda og kynnti í dag aðgerðir í húsnæðismálum. Mótmælin hófust þegar kona á níræðisaldri, Maricarmen Abascal, var þvinguð út af heimili sínu í Madríd í síðustu viku því hún hafði ekki lengur efni á að borga leigu.
Aðgerðirnar fela í sér að útburður verði bannaður næstu fjögur ár, að leigusamningar framlengist sjálfkrafa, hertar reglur verði um skammtímaleigu og bann við kaupum „hrægammasjóða“ á húsnæði.
Ríkisstjórnin hefur ekki meirhluta á þinginu
Spænska þingið þarf að samþykkja aðgerðirnar en ríkisstjórn Pedro Sanchez er minnihlutastjórn og hefur því ekki meirihluta á þinginu.
Kveikjan að mótmælum síðustu daga var þegar Maricarmen Abascal var borin út úr íbúð sinni í miðborg Madrídar. Faðir hennar tók íbúðina á leigu 1956 og hún tók við leigusamningnum þegar foreldrar hennar féllu frá.
Áður var þak á leiguverðinu sem jafngildir tæpum sjötíu þúsundum íslenskra króna. Þegar fasteignafélag keypti íbúðina fyrir átta árum var leigan hækkuð um 430 prósent.
Hún var síðar lækkuð í upphæð sem jafngildir um 226.000 íslenskum krónum. Maricarmen réð samt ekki við að greiða þá upphæð og var því borin út.
Samningar tókust í gær við leigufélagið um að Maricarmen fengi að flytja aftur í íbúðina. Málið þykir engu að síður lýsandi fyrir ástandið á Spáni þar sem húsnæðisverð þykir hafa hækkað úr hófi fram.