Það er mikil leikjafræði í gangi varðandi kjarasamninga hverju sinni og svo er eflaust líka núna, þegar lítill tími er til stefnu til að bjarga kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Stóra málið núna hlýtur að vera að tryggja öllum húsnæðisöryggi. Þar stendur m.a. upp á sveitarfélögin. Það þarf að byggja upp húsnæðisleigumarkað sem gerir fólki kleift að vera í sama skólahverfi með börnin sín. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Leikjafræðin dálítið ráðandi í kjarasamningum – eflaust líka núna