Sýningin fór fram með pompi og prakt einu ári frá frumsýningu og það vildi svo skemmtilega til að Brynhildur, sem er leikstjóri sýningarinnar og fyrrum Borgarleikhússtjóri, átti akkúrat afmæli sama dag.
Í lok uppklapps kallaði núverandi Borgarleikhússtjóri, Egill Heiðar Anton Pálsson, Brynhildi upp á svið þar sem leikhópurinn söng fyrir hana og leikhúsgestir tóku undir. Brynhildur fagnaði því tveimur áföngum á laugardaginn og segist þakklát fyrir velgengni sýningarinnar.
„Einu ári og hundrað sýningum síðar er Rauða myllan enn að stækka, þéttast og dýpka. Hvað getur leikstjóri annað gert en að leggjast í gólfið fyrir svona fagmennsku, djúpskilningi og leikgleði? Örfáum sinnum á ævinni ratar maður inn í hóp fólks sem alltaf mun eiga sérstakan stað í hjarta manns. Þannig er Moulin Rouge-fjölskyldan í Borgarleikhúsinu.
Vinnusemin og væntumþykjan alltumlykjandi. Ég lagðist á koddann, full af kærleika og barasta svolítið feimin eftir hátíðahöld kvöldsins. Þvílíkt kvöld, þvílík gleði, þvílíkir hæfileikar. Ég beygi mig enn og aftur og þakka auðmjúk fyrir mig,“ segir Brynhildur um ógleymanlegt kvöldið og sparar ekki stóru orðin fyrir aðalleikurum.
„Hvað varðar Hildi og Mikka þá var ég orðlaus. Þetta var allt upp á tíu hjá þeim. Að fylgjast með vexti Hildar Völu og Mikaels í hlutverkum sínum er undravert. Þroskinn, samleikurinn, leikgleðin, þau láta þetta líta út fyrir að vera auðvelt og það er ef til vill stærsti galdurinn.“
Í tilefni af þessum stóru tímamótum ákváðu forsvarsmenn söngleiksins að frumsýna splunkunýtt tónlistarmyndband hér á Vísi við lagið Flugeldur, sem er þýtt frá bandaríska poppsmellinum Firework eftir Katy Perry. Íslenski textinn er eftir Braga Valdimar Skúlason og í spilaranum hér að neðan má sjá myndbandið:
„Þrátt fyrir þennan stóra áfanga er sýningum á Moulin Rouge hvergi nærri lokið. Sýningin verður áfram á dagskrá Borgarleikhússins á þessu leikári og gefst áhorfendum því áfram tækifæri til að upplifa eitt glæsilegasta sjónarspil sem sett hefur verið á svið hér á landi,“ segir í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu.
Hér má svo sjá nokkrar vel valdar myndir frá hundruðustu sýningunni: