Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi hefur verið sagt upp og starfsemi fyrirtækisins á Íslandi hefur verið lögð niður.
Um 75 manns störfuðu hjá NetApp á Íslandi, flestir forritarar. Samkvæmt heimildum fréttastofu var starfsfólki sagt frá áformum um að leggja niður starfsemina á Íslandi í byrjun þessa mánaðar.
Í gær fékk starfsfólk sendan rafrænan starfslokasamning til undirritunar.
NetApp á Íslandi er dótturfélag evrópsks dótturfélags NetApps í Bandaríkjunum. Starfsemin á Íslandi byggir á íslenska hugbúnaðarfyrirækinu Greenqloud, sem NetApp í Bandaríkjunum keypti árið 2017.
Greenqloud var stofnað árið 2010 og einbeitti sér þá að skýjaþjónustu sem rekin var á endurnýjanlegri orku.
NetApp framleiðir gagnageymslur og býður upp á skýjalausnir í samvinnu við stærri þjónustuaðila, til dæmis Google, Microsoft og Amazon.