Ein kona er látin eftir árás nemanda í skóla í norðvesturhluta Slóvakíu. Önnur kona og barn eru særð eftir árásina, að því er AFP-fréttaveitan hefur eftir bráðaliðum á vettvangi. Konan sem lést var 61 árs.
Konan sem særðist er 44 ára og með stungusár í brjóstholi. Hún var flutt á sjúkrahús ásamt barninu eftir árásina.
Fjölmiðlar í Slóvakíu segja báðar konur hafa verið kennara við skólann en barnið hafi verið nemandi.
Árásarmaðurinn var nemandi á unglingsaldri.
Lögregla segir rannsókn á málinu hafna og að hún hafi náð stjórn á vettvangi. Forsætisráðherra landsins, Robert Fico, vottaði fjölskyldu hinnar látnu samúð og sagðist fylgjast áhyggjufullur með framvindu mála.
„Ég er persónulega mjög dapur yfir þessari árás.“
Peter Pelligrini, forseti landsins, sagði þetta enn eitt málið þar sem nemandi ræðst á kennara og samnemendur.
„Árásargirni og skortur á umburðarlyndi, sem er dreift fyrst og fremst í gegnum samfélagsmiðla og af sumum stjórnmálamönnum, eru bókstaflega að eitra almannarýmið og hafa áhrif á hegðun barna okkar í skólanum.“
Í janúar á síðasta ári drap 18 ára strákur samnemanda sinn og særði fjölda annarra í árás á grunnskóla í miðju landinu.