Lögmaður Maricarmen Abascal sem var borin út úr leiguíbúð sinni í Madríd í síðustu viku segir að hún fái að flytja aftur inn. Málið hefur vakið mikil viðbrögð á Spáni, varð kveikjan að háværum mótmælum og spænsk stjórnvöld ætla að kynna aðgerðir í húsnæðismálum í dag.
Beatriz Duro, lögmaður Maricarmen, greindi frá því á blaðamannafundi í gær að samningar hefðu náðst við fasteignafélagið Urbagestión og hún myndi greiða svipaða leigu og áður. Samningar náðust eftir margra klukkustunda fundarhöld.
Maricarmen hafði búið í sömu íbúð í Retiro-hverfinu í miðbæ Madrídar í meira en 70 ár. Faðir hennar tók íbúðina á leigu árið 1956 en eftir að foreldrar hennar féllu frá tók Maricarmen við íbúðinni.
Þá var þak á leiguverðinu sem nam 500 evrum, eða 68.600 íslenskum krónum. Árið 2018 keypti Urbagestión bygginguna og nýtti lagaglufu til að hækka leiguna í 2.650 evrur, sem er 430% hækkun.
Félagið lækkaði seinna leiguna í 1.650 evrur en Maricarmen hafði engu síður ekki efni á að greiða þá upphæð enda eru öryrkjabætur hennar eru aðeins 1.350 evrur á mánuði.
Kynna „Maricarmen-tilskipunina“ í dag
Þegar hún var borin út úr íbúðinni í síðustu viku hófust hávær og fjölmenn mótmæli sem standa enn yfir. Hundruð komu saman í tjaldbúðum á Puerta del Sol-torgi í Madríd og kröfðu stjórnvöld um aðgerðir til verndar leigjendum.
Spænsk stjórnvöld ætla að kynna aðgerðapakka í húsnæðismálum í dag. Í fjölmiðlum og á meðal fólks er það kallað Maricarmen-tilskipunin. Hvort hún dugi til þess að lægja öldurnar á eftir að koma í ljós.