Norlén hefur gegnt embættinu frá árinu 2018 og var búist við því að nýr forseti tæki við í gær þar til Vinstri flokkurinn tilkynnti á sunnudagskvöld að hann myndi kjósa Norlén til forseta þingsins.
„Það gæti tekið langan tíma fyrir Svíþjóð að fá ríkisstjórn. Þá þurfum við stöðugleika og fastan punkt. Þess vegna munum við greiða Andreas Norlén atkvæði okkar,“ sagði Ida Gabrielsson, varaformaður flokksins, í þættinum Agenda.
Greint var frá því í gær að Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð segðist hafa gefist upp á stjórnarmyndun til vinstri eftir að Vinstriflokkurinn á sænska þinginu hafnaði tillögu þeirra að nýjum forseta. Hún tilkynnti á blaðamannafundi snemma í gær að hún sæi engan möguleika á því að mynda ríkisstjórn. Í umfjöllun sænska miðilsins Aftonbladet kemur fram að í kjölfarið hafi Simona Mohamsson, leiðtogi Frjálslynda flokksins, boðið Vinstri flokknum til viðræðna.
Síðar í gær var Andreas Norlén úr Moderaterna endurkjörinn forseti þingsins. Hann fékk 200 atkvæði og Johanna Haraldsson úr Jafnaðarmannaflokknum fékk 146 atkvæði. Í frétt Aftonbladet segir að endurtelja hafi þurft atkvæðin í kosningunni og að eitt atkvæði hafi verið ógilt.
Finnur nýjan leiðtoga
Norlén hefur boðað formenn flokka til fundar á morgun, miðvikudag, og getur eftir það falið nýjum leiðtoga stjórnarmyndunarumboð.
Fram kemur í frétt Aftonbladet að forseti þingsins geti í mesta lagi lagt fram fjórar tillögur að forsætisráðherra til atkvæðagreiðslu í þingsalnum, verði þær allar felldar verði boðað til aukakosninga.
Þingkosningar í Svíþjóð fóru fram fyrr í mánuðinum þar sem ríkisstjórnarflokkarnir lutu í lægra haldi fyrir stjórnarandstöðuflokkunum. Þar fékk flokkur Andersson flest atkvæði, 28 prósent. Þar á eftir var flokkur Ulf Kristersson, Moderante, sem fékk 19,8 prósent atkvæða. Í kjölfarið sagði Kristersson af sér embætti forsætisráðherra.