Mikael Allan Mikaelsson, sérfræðingur í loftslagsáhættu hjá Stockholm Environment Institute, segir veðurfarssveifluna El Niño vera eina stærstu áhættuna sem steðjar að samfélagi og efnahagskerfi.
„Við erum að eyða mjög litlu fjármagni í þær breytingar sem eru á leiðinni.“
Víst er að El Niño mun kosta fjöldamörg mannslíf og valda ómældu tjóni. En svo eru það óbeinu efnahagslegu og samfélagslegu áhrifin, sem geta borist um allan heim – þar á meðal til Íslands.
Mikael leggur áherslu á að horfa ekki á El Niño sem afmarkaðan atburð sem gerist í tómarúmi.
„Ég myndi frekar segja að El Nino geti virkað sem álagspróf á þetta kerfi. Þetta gefur okkur smá augsýn í hvernig framtíðaráhættum við getum átt von á. Og svo er það auðvitað þannig að loftslagsbreytingar munu auka tíðni slíkra El Niño-viðburða.“
Viðauki við önnur átök í heiminum
El Niño bætist þar að auki við önnur áföll. Stríð, viðskiptadeilur og farsóttir geta raskað mismunandi hlutum sömu aðfangakeðju á sama tíma. Fyrir almenning geta afleiðingarnar fyrst birst í hærra vöruverði og minna framboði.
„Þegar við lítum yfir heildina þá munum við sjá þetta hafa meiri og meiri áhrif á aðgengi okkar að matvörum, því matvælaframleiðsla og landbúnaður eru mjög samanþjappaðar. Þetta er bæði aukinn skortur, flutningskostnaður, dýrari aðföng og það hefur auðvitað áhrif á fæðuöryggi, lyfjaöryggi og efnahagslegt öryggi.“
Ísland ekki undanskilið
Ísland er eyja sem gerir okkur sérstaklega berskjölduð fyrir röskun á aðfangakeðjum. Það vinnur vissulega með okkur að geta framleitt eigið rafmagn en að öðru leyti erum við að miklu háð innflutningi.
„Út af því að við reiðum á sjóleiðina, það er ekki eins og við höfum lestarkerfi sem getur komið með aðföngin.“
Mikael telur alþjóðakerfið illa undirbúið fyrir það álagspróf sem El Niño er. Málaflokkurinn hafi orðið minna áberandi á undanförnum árum og áherslan hafi fyrst og fremst verið á mótvægisaðgerðir en lítið verið spáð í loftslagsaðlögun.
„En þessi skilningur er farinn að breytast mjög mikið. Við erum að sjá það í flóðunum í Þýskalandi og í þurrkum í bandarísku landbúnaðarkerfi. Við erum að sjá aukna meðvitund en mér finnst mikið af þessari áherslubreytingu koma frá fjármálastofnunum og tryggingafélögum því þau eru að sjá skaðann hjá sér.“
Nánar var rætt við Mikael í Kastljósi kvöldsins.