Kemur þetta fram í færslu sem birt var á Facebook-síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag, mánudaginn 28. september. Þar er greint frá því að karlmennirnir hafi verið á aldrinum 17 til 67 ára en konurnar tvær 35 og 45 ára.
Tólf þeirra sem voru stöðvaðir óku um í Reykjavík, átta í Kópavogi, tveir í Mosfellsbæ, einn í Garðabæ og einn í Hafnarfirði. Sex voru stöðvaðir á föstudagskvöld, sjö á laugardag, níu á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags.