Umferð hefur verið beint um Hlíðarnar fram hjá Suðurveri og það var einnig settur upp lokunarpóstur við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Listabrautar. Að sögn sjónarvotta myndaðist mikil umferð á svæðinu í kjölfar slyssins á tíunda tímanum.
Strætisvagnstjórar hafi virst vera í basli með að komast leiðar sinnar í gegnum Hlíðarnar.
„Það rakst undir brúna, þetta hérna apparat,“ segir vaktstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar sem er á svæðinu en um er að ræða eins konar krana sem er of hár til að vera ekið undir brúna.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.