Kona á þrítugsaldri hefur verið handtekin í Flórída eftir að fjögurra ára sonur hennar lést. Sonurinn fann skammbyssu í veskinu hennar og skaut sig fyrir slysni í andlitið.Tímaritið People greinir frá þessu.29 ára kona að nafni Diamond Phillips var handtekin þriðjudaginn 22. september í borginni Sarasota sunnan við Tampa á vesturströnd Flórídafylkis í Bandaríkjunum. Er hún grunuð um vanrækslu og gáleysi eftir að 4 ára sonur hennar lést af skotsárum þann 21. júní.
Móðir handtekin eftir að 4 ára barn skaut sig í andlitið með byssu hennar