Reykjavíkurborg hefur sagt upp fjölda leigusamninga við fólk í skapandi störfum vegna eldvarna. Leigjendum þykja fyrirheit um hverfi lista og frumkvöðla í Gufunesi hafa farið fyrir lítið.
Halldór H. Jónsson arkitekt teiknaði Gufunesveg 40, eitt hús Áburðarverksmiðjunnar. Það má muna fífil sinn fegurri. Þar inni er að finna hornstein að verksmiðjunni sem lagður var 1954.
„Gufunesið og þessar byggingar, sem hér eru, eru náttúrulega bara rosalega stór hluti af okkar menningarsögu og iðnaðarsögu því að hér hófst stóriðja á Íslandi,“ segir Birta Fróðadóttir arkitekt. Hún vinnur þarna ásamt fleiri arkitektum meðal annars að rannsóknarverkefnum sem þurfa hrátt og stórt rými sem erfitt er að finna og dýrt að leigja. Þau eru með sal til þess sem líka hefur verið notaður undir fjölda sýninga.
Í Lestinni á rás eitt í síðustu viku var sagt frá því að borgin hefði sagt upp leigjendum í þessu húsi og líka í húsum við Sævarhöfða þar sem meðal annars Hjólakraftur hefur verið til húsa og í Skerjafirði þar sem er stúdíó og húsnæði fyrir ýmsa hópa. Mikill eldsvoði varð annars staðar í Gufunesi í skemmu í byrjun árs.
„Það er afar leitt að þurfa að segja upp þessum leigusamninum. Við gerum það að kröfu slökkviliðsins sem að var komið á þann stað að fara að beita borgina jafnvel dagsektum vegna þess að við höfum ekki brugðist við þeim ábendingum sem þeir hafa um brunavarnir í þessu húsnæði,“ segir Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs.
Borgin bauð húsnæði til leigu fyrir skapandi starfsemi í covid 2020. Það var hins vegar Íslenska gámafélagið sem hafði áður umráð hússins í Gufunesi og leigði til elstu leigjendanna með það að markmiði að bjóða listamönnum og sprotafyrirtækjum hagstæða leigu.
„Það var náttúrulega á þeim forsendum sem að við fórum út í gífurlegar framkvæmdir,“ segir Dagur Kári Pétursson kvikmyndagerðarmaður, „og erum búin að eyða tíu árum í sjálfir að reisa þetta stúdíó hérna spýtu fyrir spýtu.“
Þá vantaði rafmagn og hita í húsið og það var leki og leigjendurnir brettu upp ermar og einangruðu. Orri Jónsson sem rekur hljóðverið með Degi Kára segir að þeir hafi líka lagt hita og rafmagn:
„Þetta hús væri aldrei í þessu ástandi ef að við sem erum hérna hefðum ekki sinnt því.“
Eina analóg eða hliðræna hljóðverið á landinu er meðal gersemanna sem þeir félagarnir eru með þarna og voru fullir bjartsýnir þegar borgin yfirtók leigusamninginn við þá.
„Okkur var lofað þá þegar það gerðist, í orði, að við fengjum hér leigusamning, eins og það var orðað, fram yfir gröf og dauða.“
Það var árið 2020.
Borgarráð fól í sumar umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar að kortleggja mögulegt húsnæði og skila til ráðsins nú í september.
„Við settum strax í gang vinnu við að kortleggja húsnæði í eigu borgarinnar sem gæti verið húsnæði fyrir skapandi greinar og jafnvel börn í viðkvæmri stöðu, sem að stunda félagsstarf, en þeirri vinnu er ekki lokið,“ segir Einar formaður borgarráðs.
Leigjendurnir að íbúar hafi meðal annars flutt í Gufuneshverfið út af listalífinu og að þeim hafi brugðið við að heyra af uppsögn leigusamnings.
„Það væri náttúrulega æðislegt ef að þetta gæti haldið áfram að vera einhvers konar lista- og menningarmiðstöð í hverfinu,“ segir Birta.
Í upphafi lagði borgin einmitt áherslu á það, segir Dagur Kári:
„Og að það mætti alls ekki gerast það, sem gerist alls staðar, að frumbyggjarnir sem að raunverulega blása lífi í óaðlaðandi hverfi að þeim sé skolað í burt um leið og fjármagnsöflin fara að sýna þessu áhuga. En það er eins og það sé akkúrat það sem er síðan að fara að gerast.“
Birta segir upphaflega hafa verið ætlunina að flétta þessum gömlu iðnaðarbyggingum inn í nýja hverfið: „Þær þurfa þá að fá að halda að einhverju leyti sínu upprunalega útliti. Í deiliskipulaginu er mælst til þess í upprunalegri mynd. Þær eru ekki friðaðar en þær hafa að mati Minjastofnunar hátt hátt menningarsögulegt varðveislugildi. Auðvitað þarf að gera mikið fyrir þær og allt þetta. En að mínu mati væri það alger glæpur að láta þetta drabbast niður og það er það sem við erum kannski hræddust við.“