Kringlumýrarbraut er lokuð til suðurs vegna umferðaróhapps. Vegfarendum er bent á að fara um merktar hjáleiðir og fara að með gát. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var vinnuvél ekið upp í Bústaðavegsbrú en málið er hjá lögreglu sem vinnur nú að því að tryggja vettvang slyssins. Samkvæmt frétt Vísis urðu engin slys á fólki.
Hægt er að fygjast með lokun vegna á vef Vegagerðarinnar.