DV hafnar beiðni Elds um andsvar: kvörtun send til fjölmiðlanefndar

Eldur Smári Kristinsson, alþjóðafulltrúi LGB samtakanna, hefur sent fjölmiðlanefnd kvörtun vegna umfjöllunar DV um málefni trans-fólks.
Nafns Elds Smára var notað í umfjöllun DV um viðtal sem RÚV birti við Björn Hjálmarsson barnageðlækni og yfirlæknir á BUGL, og Ragnar Grím Bjarnason, barnainnkirtlalækni. Eldi var ekki gefin kostur á andsvörum þrátt fyrir að nafn hans hafi verið notað í umfjölluninni.
Í frétt DV er fjallað um viðtal RÚV við lækna í trans-teymi barna og unglinga á Landspítala. Í fréttinni er Eldur sérstaklega nafngreindur sem einn þeirra sem hafi „vakið máls á þessu“. Jafnframt er vísað beint á skrif hans um málefnið. Með þessu er ég hann aðeins nefndur í almennri umfjöllun um málefnið heldur er nafn hans tengt tilteknum skrifum og afstöðu hans á málefninu.
Í framhaldi er fjallað um gagnrýnendur á störf trans-teymisins. Haft er eftir lækni að umræða um málefnið tengist meðal annars „fordómum“ sem stafi af „fákunnáttu og þekkingarleysi á líffræði mannsins“. Síðar í sömu umfjöllun er gagnrýnni umræðu lýst sem „moldviðri“ sem sé þyrlað upp með „rangfærslum og vitleysu“.
Eldur gerði DV grein fyrir því að hann teldi samspil nafnbirtingarinnar, hlekkjanna á skrif sín og ummælanna, skapa villandi mynd af afstöðu hans og skrifum.
Aðstoðarritstjóri DV, Ari Brynjólfsson, hafnaði beiðni Elds og sagði meðal annars að „andsvararétturinn eigi ekki við í þessu tilfelli“, þar sem Eldur væri „ekki sakaður um neitt“ og að „eina sem er sagt“ væri að hann hefði „vakið máls á þessu málefni“.
Eldur mótmælti þeirri afstöðu og útskýrði að beiðnin byggðist ekki á því að DV hefði sett fram beina ásökun á hendur honum, heldur á þeirri heildarframsetningu sem fréttin skapar um hann og skrif hans.
Kvörtunina má sjá hér neðar: