Nettó hefur lækkað verð á 1.100 vörum um 2,2% og frystir verð á þeim til áramóta.
Í tilkynningu segir að verðlækkunin ná til fjölmargra vinsælla vörumerkja, þar á meðal Änglamark, Iceland, Xtra, Coop og fleiri sem og allra vara sem eru merktar Nettó.
Þar er haft eftir Vífli Ingimarssyni, framkvæmdastjóra Nettó, að fyrirtækinu þyki mikilvægt að taka þátt í aðgerðum sem vinna gegn verðbólgu.
„Með þessum aðgerðum viljum við leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að stuðla að auknum stöðugleika, verja forsendur kjarasamninga og bæta kaupmátt fjölskyldna í landinu. Að ná verðbólgu niður er sameiginlegt markmið okkar allra. Til þess þurfa allir aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld að leggja sitt af mörkum. Nettó hvetur einnig birgja til að láta ekki sitt eftir liggja í þessu átaki og halda aftur að hækkunum,“ segir Vífill.
Nettó telur mikilvægt að samfélagið allt sameinist um það markmið að ná verðbólgu niður til hagsbóta fyrir heimili og atvinnulíf í landinu.
Hagar tilkynntu fyrr í dag að vörur í Bónus og Hagkaup myndu lækka, og Krónan tilkynnti jafnframt í síðustu viku að verð á hundruðum vara yrði fryst til áramóta.