Ekkert lát er á mótmælum á Spáni þar sem krafist er aðgerða í húsnæðismálum. Mótmælin hófust þegar 87 ára gömul kona, sem jafnframt er öryrki, var þvinguð út af heimili sínu í Madríd í síðustu viku.
Hundruð eru saman komin í tjaldbúðum á Puerta del Sol-torgi í Madríd og krefja stjórnvöld um aðgerðir til verndar leigjendum. Spænsk stjórnvöld hafa boðað aðgerðapakka í húsnæðismálum sem á að kynna á morgun.
Í fjölmiðlum og á meðal fólks er það kallað Maricarmen-tilskipunin í höfuðið á konunni sem var borin út á miðvikudag í síðustu viku. Hvort hún dugi til þess að lægja öldurnar á eftir að koma í ljós.
Á meðal mótmælenda í tjaldbúðunum er hin 29 ára Elena Martin.
„Við erum hér af því að við erum komin að þolmörkum; staðan er hreinlega orðin örvæntingarfull. Í mörg ár höfum við beðið um reglur um verðlagningu. Vinsamlegast takið á húsnæðisvandanum, geriði það,“ biðlar hún til stjórnvalda.
Annar mótmælandi tekur í sama streng: „Við stöndum frammi fyrir alvarlegri stöðu, leiguverð hækkar stöðugt – upp í óviðráðanlegar hæðir – á sama tíma og laun lækka og framfærsla hækkar. Þannig er okkur er bolað út úr hverfunum okkar og við neyðumst ítrekað til að yfirgefa heimili okkar vegna hækkandi leigu.“
Bjó í sömu íbúð í yfir 70 ár
Maricarmen Abascal hafði búið í sömu íbúð í Retiro-hverfinu í miðbæ Madrídar í meira en 70 ár. Faðir hennar tók íbúðina á leigu árið 1956 en eftir að foreldrar hennar féllu frá tók Maricarmen við íbúðinni.
Þak var á leiguverði íbúðarinnar sem nam 500 evrum, eða 68.600 íslenskum krónum. En árið 2018 keypti fasteignafélagið Urbagestión húsið og tókst að nýta lagaglufu til að hækka leiguna í 2.650 evrur, eða 364.000 íslenskar krónur. Það er 430% hækkun.
Fasteignafélagið lækkaði seinna leiguna í 1.650 evrur, sem jafngildir 226.600 krónum. Maricarmen reyndist engu að síður ógerlegt að mæta þeirri upphæð þar sem öryrkjabætur hennar eru aðeins 1.350 evrur á mánuði, eða 185.400 krónur.
Spænskir dómstólar komu í veg fyrir þrjár tilraunir fasteignafélagsins til að bera hana út og mál hennar hefur vakið sífellt meiri athygli. Allt kom fyrir ekki og að því kom að Maricarmen var gert að yfirgefa íbúð sína vegna vangreiddrar leigu.
Síðan Maricarmen var borin út hefur verið mótmælt í fjölda borga, þar á meðal Sevilla, Alicante, Granada og Barselóna. Víða hefur slegið í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu, sem hefur jafnvel beitt kylfum og piparúða til að halda aftur af mannfjöldanum.
Spánverjar kenna skammtímaleigulausnum á borð við Airbnb um. Stríður straumur ferðamanna til landsins valdi því að íbúðir séu keyptar upp af fasteignafélögum sem sjái meiri gróða í skammtímaleigu en í langtímaleigu til íbúa landsins.