Jón Áki Jensson, framkvæmdastjóri lækninga SÁÁ, hefur sagt upp stöðu sinni frá og með deginum í dag. Jón Áki var ráðinn inn tímabundið fyrr í mánuðinum.
Þetta staðfestir Jón Áki við fréttastofu. Hann segir þann tíma sem hann hafi gegnt starfinu hafa verið vægast sagt krefjandi.
„Á sama tíma hefur þetta verið lærdómsríkt og í raun einstakt tækifæri til að kynnast því göfuga starfi sem á sér stað hjá SÁÁ og jafnframt að kynnast því hæfileikaríka starfsfólki sem stendur vaktina. Þau eiga hrós skilið.“
Á brattann að sækja frá fyrsta degi
Spurður hvers vegna hann hafi ákveðið að segja starfi sínu lausu eftir svo skamman tíma segist Jón Áki hafa verið fenginn til að koma inn í erfiða pólitíska deilu og aðstoða við að finna lausn á henni. Um leið hafi ráðning hans átt að koma í veg fyrir lokun á nauðsynlegri og viðkvæmri þjónustu. Það hafi verið ljóst frá fyrsta degi að það var á brattann að sækja.
„Grunnvandinn hefur verið sá að læknamönnun er verulega ábótavant og læknar almennt virðast ekki vilja eða hafa þor til að stíga inn í þessar deilur, þrátt fyrir að um viðkvæman hóp skjólstæðinga sé að ræða. Þeir möguleikar sem voru fyrir hendi voru ekki á þann hátt að mér þættu þeir fullnægjandi til að halda þjónustunni áfram í óbreyttu formi. “
Telur að önnur stofnun þurfi að stíga inn
Hann telji fullreynt að finna lausn með þeim hætti sem hefur verið reynt hingað til. Sjálfur telji hann lausnina felast í því að önnur stofnun sem hefur það starfsfólk sem til þarf stígi inn til aðstoðar.
Embætti Landlæknis hótaði að loka Vogi í byrjun september ef enginn sérfræðilæknir væri búinn að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni tveimur virkum dögum síðar, sem Jón Áki gerði.
Jón Áki telur þá stöðu ekki komna upp aftur vegna uppsagnar hans. Hann vinni upp sinn uppsagnarfrest og verði á staðnum.
„Ég hef trú á því að SÁÁ nái að lenda þessu máli á farsælan hátt innan þess tíma.“
Óska eftir stuðningi frá Landspítala
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, nýr forstjóri SÁÁ sem tók formlega til starfa á fimmtudaginn, greindi starfsfólki samtakanna frá ákvörðun Jóns Áka í tölvupósti í dag. Hún segir stærstu áskorunina sem SÁÁ standi frammi fyrir vera að tryggja stöðugleika læknisþjónustu.
Leitin að læknum standi enn yfir og nú verði næsta stóra verkefni að finna nýjan framkvæmdastjóra lækninga. SÁÁ hafi leitað til Landspítala eftir stuðningi við mönnun og vonist til að fá jákvæð viðbrögð þaðan.
„Á meðan mönnun lækna er jafn viðkvæm og raun ber vitni munum við miða við innlagnir tvisvar í viku,“ segir í póstinum.
Styr hefur staðið um heilbrigðisstarfsemi SÁÁ undanfarnar vikur. Forveri Jóns Áka, forstjóri SÁÁ og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík sögðu upp störfum vegna ágreinings við stjórn samtakanna og meintra afskipta þeirra af faglegu starfi. Formaður SÁÁ hefur hafnað því að stjórnin hafi reynt að hafa afskipti af faglegu starfi.
Starfsmenn SÁÁ sendu frá sér vantraustsyfirlýsingu á formann og framkvæmdastjórn samtakanna og kröfðust afsagnar hennar. Minnst þrír starfsmenn Vogs fóru í veikindaleyfi eftir að aðalstjórn SÁÁ lýsti fullum stuðningi við framkvæmdastjórn.
Ekki náðist í Baldvinu Ýr Hafsteinsdóttur, forstjóra SÁÁ við gerð fréttarinnar.