Tveggja ára rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á eldsvoða á Stuðlum, þar sem 17 ára piltur lést, er komin á borð héraðssaksóknara. Tólf eru með réttarstöðu sakbornings í málinu sem snýst um manndráp af gáleysi, þar á með Óskar Jósefsson forstjóri Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna.
Kveikt var í dýnu í herbergi á neyðarvistunargangi Stuðla 19. október 2024 með þeim afleiðingum að 17 ára piltur lést og starfsmaður Stuðla slasaðist.
Verulegir annmarkar á brunavörnum og eftirliti
Í ítarlegri rannsóknarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem kom út í mars, segir að verulegir annmarkar hafi verið á brunavörnum og að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslát hefðu þær verið í lagi.
Þá hafi eftirlitsaðilar ítrekað krafið Ríkiseignir, sem eiga húsnæði Stuðla, um nauðsynlegar úrbætur í brunavörnum, sem ekki hafi verið brugðist við. Þá hafi slökkviliðið ekki sinnt eldvarnareftirliti með fullnægjandi hætti.
Sakborningarnir orðnir 12 – þar á meðal forstjóri Ríkiseigna
Málið var rannsakað sem manndráp af gáleysi eða hlutdeild í manndrápi af gáleysi. Einnig voru til rannsóknar brot á lögum um brunavarnir og mannvirki. Upphaflega voru þrír með réttarstöðu sakbornings en eftir því sem á rannsóknina leið fjölgaði þeim jafnt og þétt og nú eru þeir tólf.
Þar á meðal eru starfsmenn Stuðla og að minnsta kosti eitt ungmenni sem var vistað þar, starfsmenn Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna, og aðrir sem komu að brunavörnum.
Málið fór til héraðssaksóknara fyrir helgi, sem tekur síðan ákvörðun um ákæru.
Fréttin var uppfærð og fyrirsögn breytt.