Í mars 2023 fengu 378 einstaklingar aðstoð en í júlí á þessu ári voru þeir 70 talsins.
Árangurinn má rekja til aukinnar samvinnu milli velferðarsviðsins og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, Vinnumálastofnunar og fleiri stofnana.
Hilma H. Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni-og ráðgjafateymis á velferðarsviði Reykjanesbæjar, var gestur Síðdegisútvarpsins á rás tvö.
Hvetja fólk til að komast aftur út í samfélagið
Hilma segir samvinnu stofnana hafa skilað þeim árangri að þeim sem þiggja fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins hafi fækkað um 80%.
Hún segir það geta verið erfitt fyrir fólk sem hefur verið lengi í vanvirkni að koma sér aftur í virkni.
„Þannig þetta hefur svolítið verið það að hvetja fólk til þess að fara af stað, þá kemur oft eitthvað annað sem leiðir af því og kemur hreyfing á mál fólks.“
Hilma segir að velferðarsviðið veiti félagslega ráðgjöf til þeirra sem þurfa.
Eftir heimsfaraldur Covid hafi margir þurft fjárhagsaðstoð og erfitt varð að sinna einstaklingsstuðningi. Hún segir markmiðið fyrst og fremst hafa verið að auka vellíðan íbúa með aukinni virkni.
Hún segir mikilvægt að fólk á vinnumarkaði taki vel á móti þeim sem hafa verið lengi utan hans.
„Það skiptir máli. Og alls konar félög, foreldrafélög og félagasamtök hvers konar. Bara að taka þessi skref og vera þátttakandi í samfélaginu.“