Ef marka má Instagram færslur Bowman hefur hún meðal annars heimsótt Reynisfjöru, Skógarfoss og spókað sig í miðborg Reykjavíkur.
„Þetta reddast allt og einn daginn verður þú á Íslandi með ástinni í lífi þínu að elta fossa, alveg eins og við!,“ skrifar hún á Instagram.
Dani var þátttakandi í fyrstu þremur seríunum af Love on the Spectrum kynntist í fyrstu seríu fyrrverandi kærasta sínum Adan Correa. Í þriðju seríu þáttanna hætti parið fyrrverandi hins vegar saman. Skömmu síðar opinberuðu Bowman og Andrade samband sitt.
Í bandarísku Netflix-raunveruleikaþáttunum Love on the Spectrum fótar fólk á einhverfurófinu sig í heimi stefnumóta og sambanda.
Þættirnir hófu göngu sína árið 2022 og hafa alls komið út fjórar seríur og er sú fimmta væntanleg. Þeir fengu afar góðar viðtökur og hafa hlotið þó nokkur Emmy-verðlaun í flokki raunveruleikasjónvarps.