Rússar gerðu umfangsmiklar drónaárásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í dag. Að minnsta kosti einn lét lífið og 21 særðist, þar af þrjú börn. Rússneskur dróni hæfði þorp nærri landamærunum að Póllandi og olli skemmdum á landamærastöð.
Rússnesk hryðjuverk og grimmdarmennska
Drónar hæfðu meðal annars Vísindaakademíu landsins sem er í miðborginni, nærri stjórnarbyggingum, þjóðaróperunni og sendiráði Þýskalands.
Í myndskeiði sem deilt var á netinu sést dróni koma á miklum hraða, hafna á húsi Vísindaakademíunnar og springa. Svartur reykur steig upp eftir árásina.
Sjónarvottar sáu fólk halla sér út um glugga byggingarinnar meðan eldtungur læstu sig í hluta hennar.
Úkraínsk stjórnvöld segja þetta ekki í fyrsta skipti sem Rússar ráðist gegn menningarstofnunum, stjórnarbyggingum og menntastofnunum.
Vísindaakademían kallaði árásina rússnesk hryðjuverk og grimmdarmennsku sem hafi beinst gegn friðsælu fólki sem væri einfaldlega í vinnunni.
Volodymyr Zelenskyy Úkraínuforseti sagði aðra loftárás á borgina hafa hæft heilbrigðisstofnun í borginni.
Drónaárás á þorp nærri landamærum við Pólland
Rússar gerðu árásir á fleiri staði í Úkraínu. Fjórir hið minnsta létust og 19 særðust í árás á viðskiptamiðstöð í borginni Dnipro. Mannfall varð einnig í loftárás á Kharkiv í austurhluta Úkraínu en yfirvöld sögðu ekki hversu margir hefðu látist.
Þrjátíu almennir borgarar særðust, þar af þrír alvarlega, í loftárásum á Zaporizhzhzhia í suðausturhluta Úkraínu.
Sergiy Koretsky, forsætisráðherra landsins, sagði hættu steðja að víða um land.
„Óvinurinn herðir á hryðjuverkum sínum. Ég hvet íbúa eindregið til að hundsa ekki viðvaranir og halda sig á öruggum stöðum þegar mögulegt er.“
Rússneskur dróni hæfði einnig úkraínskt þorp nærri landamærum Póllands í dag. Skemmdir urðu á landamærastöð í árásinni. Roman Romaniuk, starfandi héraðsstjóri Volyn-héraðs, sagði á Telegram að sprengibylgja í kjölfar árásarinnar hefði skemmt landamærastöðina.
Úkraínumenn eru áhyggjufullir yfir vetrinum. Rússar hafa þróað nýja tegund dróna sem eru þotuknúnir. Erfiðara er fyrir loftvarnarkerfi að verjast þeim þar sem þeir fljúga hærra en hefðbundnir drónar og fljúga töluvert hraðar.
Zelenskyy ítrekaði í síðustu viku ákall sitt til vestrænna bandamanna um að auka hernaðarstuðning við Úkraínu, þar á meðal með afhendingu Patriot-loftvarnarkerfa. Þau geta grandað öflugum eldflaugum.